13.12.2008 | 20:56
Hin helgu vé
Ég var að velta fyrir mér vali mbl.is á myndinni sem fylgir "andmælunum" (eins og Hörður kallaði mótmæli dagsins) á Austurvelli í dag, því þar voru ekki bara Neyðarstjórn Kvenna (Vinstri Bleikar?) sem voru með gjörning heldur var Hörður sjálfur með súrrealískt ártala-upptal á mínútu fresti (svo súrt var það að við upplestur á "1991" þá sprakk ung mær úr hlátri svo það ómaði um allan Austurvöll) plús það, að það voru töluvert fleiri mótmælendur á staðnum en þessi mynd segir til um...
Auðvitað eru Tómasardætur á myndinni alveg gull-fallegar (vantaði bara Þóru til þess að lýsa upp svæðið) en kannski vildi mbl.is spyrða mótmælin í heild sinni við þessa ákveðnu framtíðarstefnu sem þessar undurfögru (og flug-greindu!) kvenMenn aðhyllast (sem sagt að mbl.is vildi skilgreina mótmælin á Austurvelli fyrir okkur svo við getum ákveðið hvort við tækjum þátt í þeim í framtíðinni?)
En svo allt í einu átta ég mig á að myndvelj-andinn hefur malað þessa skák!
Í eldinum sem konurnar hafa kveikt má sjá Óðinn, hinn gamla guð landsins materíaliserast! Það fer ekki á milli mála að þarna er andlitssvipur hans jafn skýr og skyr á jakkafötum Geirs Hilmars!
Eru Tómasdætur ekki bara ramm-pólitískar, heldur ramm-göldróttar í þokkabót! ??? Og þá svona miklu göldróttari en Mamma Hauks? (sem gamli Dímoninn náði að svæfa áður en hún gat stunið upp þulunni... hún er náttúrulega, að eigin sögn, norn Mammons, svo það var nokkuð fyrirséð að hún færi ekki að særa út neina anda úr Seðlabankanum!)
Ef grunur minn reynist réttur ættu þeir sem ekki tóku ábyrgð á gjörðum sínum og vangjörðum að fara að vara sig! Hin helgu vé hafa verði aurugum fótum troðin og þursar halda til Valhöll. Óðinn mun kenna þeim Hávamál.
Líklegt er að Þór mæti á svæðið til þess að rakskella marvel-blaða-sölu-drenginn sem fer f-ljúgandi um heiminn á hans merkjum!
Pabba drengsa tekur svo Loki því Loki á lokaorðið í öllu sem snýr að lævísi og plotti. Loki sendir svo börnin sín á restina sem existerar... og þó fyrir utan einn hópinn; Hringadrottnararnir fá að vinna í Bónus það sem eftir er og "pressjus"-emjandi kvikindið úr Lord of The Rings les Hringadróttinssögu upphátt á pólsku fyrir þá til að drepa tímann!
Vekjaraklukka fyrir stjórnvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.