Færsluflokkur: Bloggar
18.12.2008 | 14:25
Múgurinn afgreiðir málin
Ég held að Ingibjörg Sólrún hefði betur hent nokkrum "Skylmingarþrælum" inn á völlinn þegar hún hafði tækifæri til, því nú fer múgurinn um borgina og ætlar að afgreiða málin sjálfur. Því lengra sem líður að "tiltekt" því ofar á listann fer hún sjálf.
Hendið burt liðinu sem augljóslega er ábyrgt og boðið til kosninga í vor.
Mótmæli halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2008 | 14:03
"Gríska aðferðin"
Það verður að segjast eins og er, "gríska aðferðin" virkar (a.m.k. einn klíkuaðili er farinn eftir "grikkinn" í Landsbankanum). Þetta virðist vera það eina sem kemur við kaunin á þeim siðspilltu: Hræðslan við æstan múg! Ekkert annað hefur dugað til þessa.
Rúðubrot eru svar við lok-lok og læs aðferð yfirvalda (sem ætla mætti að hefði verið lexían af atburðunum við lögreglustöðina!?) Sumir eru að væla yfir nokkrum brotnum rúðum: "Við skattgreiðendur berum kostnaðinn bla bla bla..." - Þetta er líklega sama liðið og mun kjósa sömu flokkana yfir okkur aftur...
Þótt auðvitað voni allir/flestir að það komi ekki til átaka hér eins og nú eru í Grikklandi, þá er ágætt að minnast þess að þar er lýðræðið fundið upp og kannski er eina ráðið að verja það með þessum hætti ?
Rúður brotnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2008 | 15:13
Íþróttaálfurinn
"...nær Bush ekki að víkja sér fimlega undan árásinni heldur fær hann skóinn beint í andlitið."
Þvílík vonbrigði að þurfa að horfa á íþróttaálfinn endurtaka fyrri snilldar takta (svo brilleraði hann með skónúmera-brandaranum !#"!!%%&$ Þetta er ekki sanngjarnt Guð! ).
Hvar er réttlætið mbl.is (s.s. "the dog-eat-shoe") ?
"hehehe... ég sé um mína, hehehehehe...."
Gera óspart grín að skóárásinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2008 | 14:56
Þessir grímuklæddu...
Það hlýtur nú að fara að ske að létt-krimmar þessa lands fara að sjá möguleikana í því að blanda sér í þessa mótmælendahópa og bíða eftir fleiri uppákomum í bönkunum. Ég meina; þarna ertu kominn inn í banka, grímuklæddur, ásamt 20 öðrum "díkojum"... Svo gæti nú verið að þegar mótmælin fara á 3. stig (þessi mótmæli nýverið hafa verði á 2. stigi, Austurvöllur/Borgarafundir hafa verið 1. stig ?) - að mótmælendurnir fara að fjármagna sig að hætti erlendra andstæðinga ríkisstjórna: með því að ræna banka og önnur hof Mammons...
(*létt-krimmar eru þessir "venjulegu" glæpamenn... þessir sem lögreglan hefur fyrir að elta uppi. Hinir, þessir alvöru, sleppa auðvitað við allt svoleiðis...)
PS: Er Jón Gerald á leið í framboð ??
Jón Gerald mótmælir í Landsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2008 | 14:27
Eru ekki 15 mínúturnar liðnar ?
...annars er þetta ágætis náungi og kannski að maður kjósi hann í stað þess að skila auðu, en ef eitthvað byltingarkennt (* og þá með lýsingarorðunum: "undur og stórmerki") fer ekki að koma fram á sjónarsviðið bráðlega, þá sýnist mér að "nýju-íslandi" verði eytt í móðurkviði og gamla maskínan haldi bara áfram og áfram án nokkura framfara...
Framfaraflokkurinn fær listabókstafinn A | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.12.2008 | 13:21
Hlægilegri sem lengra líður...
Maður nennir varla að blogga lengur um Reyni, ég býst við því að hann verði bara hlægilegri því sem lengra líður á ritstjóraferil hans...
Miklu nær væri að pæla í nýjustu frétt veftímaritsins Nei
Björgólfur lét stöðva frétt og listaverk vorið 2004
Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2008 | 19:51
Úff... (hann Reynir á þolrifin í mér).
ENN reynir Reynir að láta líta út fyrir það að blaðagreinin hafi verið ókláruð af hálfu litla blaðamannsins og þess vegna hafi hún ekki verið birt!
Hann biður ýmsa afsökunar en ekki litla blaðamanninn, fyrir að hafa logið uppá hann og hreinlega reynt að gera lítið úr hans persónu (sem er auðvitað ástæða þess að lilli fer í Kastljósið ;)
Í lokin þakkar hann svo öllum þessum nýju áskrifendum sem hafa bæst við undarfarinn sólarhring...
"yea right!"
Reynir biðst afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 16:52
Krakkarnir á Tjarnarborg
Ég held að krakkarnir á Tjarnarborg verði efnilegir mótmælendur framtíðarinnar... Að fá þetta svona beint í æð snemma á lífsleiðinni skapar rétt hugarfar(?) síðarmeir.
En það verða auðvitað stjórnmálamenn framtíðarinnar, sem eru að sjálfsögðu í þessum hópi mótmælendanna nú, sem þessir litlu krakkar munu fara gegn. Þetta segir sagan a.m.k., meira að segja hin íslenska.
Ríkisstjórnin inn um bakdyrnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 16:38
Ofsóknaræðistilfelli ?
Getur það verið að Reynir sé haldin einhverskonar ofsóknaræði gagnvart gamla refnum ?? Var þetta kannski bara hans egin dímon sem sá fyrir sér möguleg viðbrögð einhvers sem hann er skít hræddur við? - en það gat hann nú ekki sagt litla blaðamanninum ! - neiiiiii, hann varð að setja þetta upp á "raunverulegri" hátt til þess að lilli myndi skilja... meðal annars bar hann lilla saman við kettling sem auðvelt væri að drepa (og þetta hræddi lilla svo mikið að hann sá sér ekki annað fært, eftir margra vikna andvöku, að koma sér fram í dagsljósið svo að gamli refurinn og hugsanlegir stútarar hans gætu ekki aðhafst neitt í myrkrinu...) s.s. málið í heild sinni er kannski bara eitt risastórt ofsóknartilfelli !?
Björgólfur: Fjarstæða en kemur ekki á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 13:17
Djöfull er DV farið að vera "ábyrgur fjölmiðill"...
Er þetta einhver ný ritstjórnarstefa sem "sonur hattsinns" er að drita niður þarna? (og heldur áfram að reyna að gera blaðamannin unga tortryggilegan!)
Svo dirfist hann að segja í lokin: "Fyrir mistök birtist röng útgáfa af leiðara dagsins á dv.is í morgun." (en ekki: "mér kom fleyra illt í hug")
PS: Fáðu þér hatt...
Breyttur leiðari DV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)